Íslenskur Bjór
19. mars, 2010 – 14:14
Eitt það skemmtilegasta við heimkomuna er að uppgötva gróskuna sem varð í bruggun á íslesknum bjór.
Brugghúsið Ölvisholti, Bruggsmiðjan Árskógsströnd, Mjöður á Snæfellsnesi og Ölgerð Reykjavíkur eru allt framleiðendur að fyrirtaks bjórum sem er gaman að kynnast.
Fyrir minn smekk verð ég að segja að Skjálfti og Móri frá Ölvisholti stenda uppúr flórunni. Þvílíkir gæðabjórar!
Lengi sýtti ég að ekki væri hægt að fá góða Ale eða dekkri bragðmikla lager bjóra á Íslandi.
Þeirri eftirspurn hefur nú verið svarað.
Erlendur vínsérfræðingur, sem ég hitti eitt sinn fyrir löngu síðan, sagði að hann hefði það fyrir reglu að drekka alltaf lókal bjór. Bjór væri ferskvara sem væri best að njóta sem næst framleiðslu.
Þessvegna kaupi ég helst bara bjór sem bruggaður er á Íslandi.





Síðast liðinn sunnudag var Alex Jurshevski í Silfri Egils og varaði íslendinga við frekari lántökum. Viðtalið varð umdeilt af einhverjum sökum, svo að Egill fann sig knúinn til að bregðast 
