Sorglegt ástand í S.u.s.

20. júní, 2008 – 14:04

Fyrir nokkrum dögum rakst ég á áhugaverða grein eftir sjónvarpsmanninn Jon Stossel um fíkniefni og “stríðið” gegn þeim.

Nálgun hans var einföld, það á ekki að banna sjálfráða einstaklingum að skaða sig.

Stossel spyr m.a. “Ef menn geta ekki haldið fíkniefnum utan veggja fangelsa, hvernig í ósköpunum halda menn að hægt sé að koma í veg fyrir að þau berist inn í landið?

Það setur kosningaloforðið um “Fíkniefnalaust Ísland árið 2000″ í samhengi. Hvernig gengur annars sú barátta?

Ég sendi greinina á nokkra vini sem svo áframsendu hana á sína vini og kunningja sem starfa í S.u.s. og Heimdalli. Eitt sinn var lífleg umræða í þeim félagasamtökum um skynsemina á bak við fíkniefnabannið.

Mér er sérstaklega minnistætt aukaþing í Kópavogi í formannstíð núverandi heilbrigðisráðherra þar sem var mikið rætt um málefnið. Þá mátti ræða hlutina, svo er ekki lengur.

Skilaboðin innan úr ungliðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins voru einföld. “Ungliðahreyfingin mun ekki hreyfa við neinu varðandi þetta. Það er alveg bannað. Umræða innan hennar mun heldur ekki eiga sér stað.”

Hefur pólitískur rétttrúnaður svo algerlega hertekið unga sjálfstæðismenn að það má ekki ræða umdeilda hluti lengur?

Share and Enjoy:
  • del.icio.us
  • Digg
  • Facebook
  • Google
  • TwitThis
  1. 5 Responses to “Sorglegt ástand í S.u.s.”

  2. …kannski hefur frjálshyggjan ekkert svar við þessu?

    By Árni Guðmundsson on jún 20, 2008

  3. Í Ameríku er engin frjálshyggja, það er stórkostleg mýta.

    Öll fangelsi eru að springa hér vestra vegna sífellt harðari refsinga í “stríðinu” Fáránlegt hlutfall þjóðarinnar situr í fangelsi. Það hæsta í heimi. Ekkert bendir til þess að sigur sé í sjónmáli.

    Hver er staðan á Íslandi, Árni? Erum við að nálgast markmið Framsóknar um fíkniefnalaust Ísland?

    Markmið ríkisstjórnarinnar eru skynsamari að auka forvarnir og fræðslu.

    En auðvitað á að ræða allar hliðar á málinu. Þar fellur Sus á prófinu.

    Núverandi ástand er óskastaða glæpamannanna.

    By fridjon on jún 20, 2008

  4. Sæll Friðjón.

    Nú er ég starfandi stjórnarmaður í Heimdalli og hef verið síðastliðin tvö ár og ætti því að þekkja nokkuð til innviðis starfsins. Ég kannast ekki við þessi skilaboð sem þú birtir hér sem að mér virðist vera orðrétt frá nafnlausum aðila. Þætti nú ekki verra ef þú gætir nafngreint þennan heimildarmann þinn.

    Sjálfur er ég sammála orðum Stossels þó að ég hafi ekki fengið greinina áframsenda sem þú sendir. Þó að umræðan varðandi þetta tiltekna málefni hafi ekki verið eins lífleg og áður fyrr hefur þó umræðuefnið verið tekið nokkrum sinnum fyrir t.d. síðast á opnum fundi Heimdallar með núverandi heilbrigðisráðherra.

    Auðvitað má alltaf gera betur og sitt sýnist hverjum um hvar áherslurnar eigi að liggja. En það auðvitað fylgir því að taka þátt í stjórnmálastarfi.

    By Rúnar Ingi on jún 21, 2008

  5. Sæll Rúnar
    Núverandi heilbrigðisráðherra má eiga það að hann er óragur.

    Það er alls ekki skoðun mín að S.u.s. eigi að gera málið að sérstaka baráttumáli. Ég hef mikinn skilning á því að þetta er erfitt mál viðreignar og því tengjast sterkar tilfinningar hjá mörgum.

    Mér fannst hinsvegar viðbrögðin sem mér bárust vera áhugaverð og gefa tilefni til að minnast á þau.

    Það má vera að bréfritari hefi metið stöðuna vitlaust og það sé bullandi undiralda innan hreyfingarinnar fyrir því að ræða erfið mál eins og þessi opinskátt . Ég er svo sannarlega ekki dómbær lengur á það. En þegar bréfritari segir að umræðan sé bönnuð þá er það að ákveðnu leyti áfellisdómur yfir forystu S.u.s. og Heimdallar. Í því felst að bréfiritari líti svo á að fólk fengi bágt fyrir að vilja ræða svona mál opinskátt.

    Þar liggur hið sorglega ástand.

    Annars eru viðbrögðin merkileg og meiri en ég bjóst við, snerti ég viðkvæma taug með þessum bloggi?

    Annars er það margt sem þið í Heimdalli eru gera sem er flott, opnu stjórnarfundirnir og Já, ráðherra svo eitthvað sé nefnt. Heimdallur hefur sýnt aðeins meiri lit en lengi áður og hefði gott af því að halda áfram á þeirri braut. Núverandi stjórn er blessunarlega meiri hægri stjórn en lengi hefur sést. Hann hefði að vísu gott af því að fara í gegnum smá yfirhalningu og stefna út á hægri miðin enn frekar.

    Guð veit að það er erfitt að finna vott af hugsjónum hægrimanna í aðgerðum stjórnmálamannnanna.

    Hvað er pointið í að vera í pólitík ef það er ekki fyrir hugsjónirnar?

    Heimdallur á að vera róttækur, ýtinn og óþolinmóður þar liggur tilgangur félagsins.

    mbk

    By Friðjón on jún 22, 2008

  1. 1 Trackback(s)

  2. jún 20, 2008: Sökkar SUS? » Potturinn.com » Potturinn

Post a Comment