Sýn Nýja Landsbankans
6. nóvember, 2008 – 11:00Í stjórn Nýja Landsbankans sitja 5 manns skipuð af Árna M Mathiesen og Björgvini Gé.
Stjórnarformaður:
- Þórhallur Arason, skrifstofustjóri fjárreiðu- og eignaskrifstofu í fjármálaráðuneytinu
Aðrir í stjórn:
- Angantýr Einarsson, skrifstofustjóri rekstrar- og upplýsingaskrifstofu í fjármálaráðuneytinu.
- Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, og
- Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu.
- Margrét Sæmundsdóttir, starfsmaður í viðskiptaráðuneytinu.
Er ríkisbankinn Landsbanki, sem er undir stjórn trúnaðarmanna Fjármálaráðherra, Viðskiptaráðherra og Iðnaðarráðherra að hjálpa Jóni Ásgeiri og Pálma Haraldssyni eignast alla fjölmiðlun á Íslandi?
Hvernig Geta Árni M, Björgvin Gé og mentor Björgvins, Össi vikið sér undan ábyrgð á því að Landsbankinn sé í lykilhlutverki í þessum Rauðsólar/Sýnar gjörningi?






5 Responses to “Sýn Nýja Landsbankans”
Í viðtali við Jón Ásgeir kom fram að það er ekki Landsbankinn sem stendur á bakvið þetta. Landsbankinn sendi frá sér yfirlýsingu um það sama í gær. Hvernig geta Árni M, Björgvin G og Össur þá haft einhverja ábyrgð? Lærðu heim áður en þú byrjar að kenna Friðjón
By Sveinn Egilsson on nóv 6, 2008
Þeir ættu náttúrulega að gera þetta eins og í gamla daga. Skipa ríkisbankanum að þvinga eignarhaldið í hendur á einhverjum sem er þeim þóknanlegur.
Sjálfstæðismenn strax farnir að kalla eftir því að stjórnmálamennirnir misnoti valdið sem felst í ríkiseigu fjármálastofnana. Það tók ekki langan tíma…
By IG on nóv 6, 2008
Hugmyndin er frá Landsbankanum komin segir Ari Edwald.
Landsbankinn samþykkir uppskiptin sem hefur það í för með sér að 365 er skipt upp.
Bestu bitarnir teknir út og færðir í annað hlutafélag sagði Árni Hauksson fyrrverandi stjórnarmaður. Það er gert með samþykki Landsbankans.
Þar fyrir utan, Sveinn trúir þú virkilega bankayfirlýsingum?
By Friðjón on nóv 6, 2008
Hugmyndin er frá gamla Landsbankanum. Bankanum sem var í einkaeigu, taktu eftir því. Og já auðvitað trúi ég því þegar Jón Ásgeir segir hinn nýja Landsbanka ekki koma nálægt þessu og bankinn segir það sama. Ertu að segja að báðir aðilar ljúgi
By Sveinn Egilsson on nóv 6, 2008
Sveinn
Nýi Landsbankinn á skuldirnar. Þær verða ekki fluttar nema með hans samþykki. Þannig að á endanum er það ákvörðun bankastjóra Nýja Landsbankans að leyfa þetta.
Miðað við allt ruglið, svindlið og svínaríið í kringum Jón Ásgeir og Pálma þá skil ég ekki að bankaráð bankans hafi ekki sett Elínu stólinn fyrir dyrnar.
Eins og ástandið er núna þá á bankaráðið að vera aktíft.
By Friðjón on nóv 6, 2008