Á alla sanngjarna mælikvarða er [ESB] fullkomið
17. júlí, 2009 – 5:35Andrés vinur minn Jónsson er frá sér numinn af gleði yfir atkvæðagreiðslu gærdagsins og skrifaði innspírað blogg um öll yndi ESB. Glýjan í augunum á greyinu hefur blindað hann svo algerlega að mér finnst mesta furða að hann hafi náð að vista pistilinn á síðuna.
Það er skemmst frá því að segja að pilturinn er veruleikafirrtur og ef hann er dæmigerður Samfylkingarmaður þá megum við ekki eiga von á góðu. Samningatæknin verður svona eins og hjá 5 ára barni sem langar í nammi.
Svona í fljótu bragði þá eru nokkur atriði sem ég staldra við hjá Andrési:
- Varðandi Evruna, Lettland gekk í ESB 2004, þeir búast við að taka upp evru 2012-2013. Ísland er víðs fjarri því að uppfylla Maastrict-skilyrðin, þótt við gengjum í ESB þá gætum við líklega ekki tekið upp evru fyrr en eftir 2020. Við uppfyllum ekki eitt þeirra í dag.
- Ég er ekki viss um að bændur í Afríku líti á tollamúra ESB sem lífskjarabót.
- Evrópusambandið er þróaðra og fullkomnara í nálgun á brýn póltísk verkefni segir AJ. Ef hann á við fullkomið skeytingarleysi gagnvart lýðræði og teknókratismi sé fullkomin aðferð til að leysa pólitísk úrlausnarefni, þá hann um það.
- Andrés segir okkur eigum vini í ESB því almenningur kaus Is It True þrátt fyrir Icesave. Þess vegna er hagsmunum okkar borgið í höndunum á framkvæmdastjórninni!!!
- Andrés vill ekkert með Obama gera, en vill fá Íslendinga inn á þing sem þar sem öfga þjóðernissinnar eru í sókn!
- Í ESB eru víst ekki teknar geðþóttaákvarðanir, þannig að allar vondu heimskulegu ákvarðanirnar eru teknar að yfirveguðu máli. Til dæmis að halda Evrópuþingið bæði í Brussel og Strassburg þar sem gríðarlegum fjármunum er sóað í að flytja gögn á milli staðanna tveggja. Það var yfirveguð og heimsk ákvörðun. Í 15 ár í röð hefur ekki verið skrifað undir reikninga ESB. Þeir sem koma upp um spillingu eru reknir en þeim spilltu hampað. Það eru yfirvegaðar og heimskar ákvarðanir.
- Og inni þetta samband eigum við að ganga hnarreist og ekki með skilyrðum því á alla sanngjarna mælikvarða er það fullkomið!
Samfylkingarinnar vegna, vona ég að þau sendi harðari samningamenn en Andrés Jónsson til Brussel.
Ekkert fyrir Allt yrði hans niðurstaða.
Fyrir málstað okkar sjálfstæðisinna, þá vona ég að samninganefndin samanstandi af Andrési, Baldri Þórhallssyni og Björgvini Gé. Þeir kæmust ekki einu sinni til Keflavíkur, þeir væru svo uppteknir í huglægu hóprúnki yfir þessu fullkomna sambandi.






13 Responses to “Á alla sanngjarna mælikvarða er [ESB] fullkomið”
Miðað við að Andrés sé veruleikafirrtur, þá er þetta afskaplega slappt svar hjá þér.
Andrés talar t.a.m. aldrei um Obama, heldur bendir á að bandaríska stjórnin hefur stutt pyntingar. Sem er jú rétt.
Og í ESB geta allavegana ekki tveir menn ákveðið það uppá sitt einsdæmi að gerast þáttakendur í stríði. Ólíkt t.a.m. Íslandi.
By Einar Örn on júl 17, 2009
Að uppfylltu ERM II skilyrðinu, og vaxta og verðbólguskilyrðum. Þá ætti þetta ekki að taka styttri tíma en tvö ár, ef Íslendingar sýna af sér hörku og einbeitingu. Hinsvegar er raunsætt að miða við 2 til 5 ár í þessum efnum. Vextir og verðbólga verða að vera í lagi svo við getum tekið upp evruna. Varðandi skuldingar, þá gætum við tekið upp evruna ef niðurgreiðsla skulda er góð og stöðug. Þetta segir fyrrverandi sendiherra ESB til Íslands og Noregs, sjá hérna.
http://blogg.esb.is/?p=76
By Jón Frímann on júl 17, 2009
Þeir kæmust ekki einu sinni til Hafnarfjarðar…
Annars mjög góður pistill hjá þér
By Máni Atlason on júl 17, 2009
Thu og Holmsteinn verdid tha bara i huglaegu hoptotti a medan yfir grillinu. Loserar.
By Lalli on júl 17, 2009
Er heimurinn virkilega svona svart/hvítur Friðjón? Hvað hafa Sjálfstæðismenn um þetta mál að segja? Ég get ekki séð að þið hafið neitt að segja. Það eina sem þið töluðuð um í ræðustól á Alþingi var afstaða VG. Þú ert á sama stað. Alþingi sækir um aðild að ESB og það eina sem þér dettur í hug að skrifa er gagnrýni á einhvern bloggara! Hvað finnst ÞÉR um það sem gerðist í gær?
By Einar Pétur on júl 17, 2009
Sorrý, Friðjón
Íslandendingar hafa brotið af sér fyrstu hlekkina úr þrældómi sér-hagsmuna kvótagreifa Sjálfstæðisflokksins.
Þjóðin er að vakna og mun smá með upplýstri umræðu sjá hvar hag hennar er best borgið.
Almenningur er að fatta að kvótinn er séreign í raun og þeir einu sem græða á ástandinu (lágu gengi) er Kvóagreifarnir; þeir hinir sömu og spiluðu rassinn úr buxunum í huglægu hóprunki á hlutabréfamarkaðnum.
Nú fá þeir niðurfellingu skulda og fá að skipta um kennitölur eftir að hafa spilað með “sameign þjóðarinnar” á fjármálamörkuðunum og veðsett óveiddan kvóta næstu árin.
Almenningur er að fatta að eignarhald á kvótanum (íslenskur arfleiddur kvótagreifi vs. Spánverji) skiptir engu í raun fyir hagsmuni hans.
Áróður sér-hagsmunaaflanna mun verða undir vegna þess að hann stenst ekki nánari skoðun og sannleikurinn mun sigra, hið góða, að lokum.
Áfram Nýja Ísland
By Dabbi Delux on júl 17, 2009
“Evrópusambandið er þróaðra og fullkomnara í nálgun á brýn póltísk verkefni”
Eins og í stríðinu á balkansskaga.
Og hvað er þetta með þessar pyntingar USA, ekki að ég vilji hæla þeim, en voru þær ekki flestar framkvæmdar í Evrópulöndum í einhverjum leynifangelsum? USA er líka ríki en ESB enn bara semi ríki. Ríki innan ESB tóku klárlega þær ákvarðanir að heimila þetta innan sinna landamæra. Sama
Evrópa eftir stríð hefur náð að byggja sig upp í vissri velferð og annað í skjóli BNA, enda ekki þurft að halda úti jafn kostnaðarsömum her. Þetta ástand er ekki endilega fasti, sérstaklega ekki í ljósi þess hroka og yfirlæti sem ESB (og evrópubúar) sýnir í samskiptum við BNA og birtist einmitt í svona pistli eins og frá Andrési.
By Birgir on júl 17, 2009
Finnst þér þetta ekki kunnuglegt…?
http://www.youtube.com/watch?v=zExc6SK4kpA
minnir mig óneitanlega á VG í gær…
By Ólinn on júl 17, 2009
“Samningatæknin verður svona eins og hjá 5 ára barni sem langar í nammi.”
Hehehe… frekar fyndið
By Andrés on júl 17, 2009
Einar Pétur
Veistu ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það sem gerðist í gær.
Annarsvegar finnst mér það ömurlegt að þetta skuli vera aðalmálið þegar eldar loga á Íslandi.
Að leggja áherslu á þetta mál núna er eins og að kasta brauðrist til drukknandi manns.
Hinsvegar er ég svoldið eins og Svavar Gestsson var í Icesave. Ég er orðinn leiður og vil bara drífa hlutina af.
Við fáum þá á hreint hvað býðst í viðræðum svo við getum hafnað samningi og fengið frið fyrir þessu rugli í ca. 20 ár.
By Friðjón on júl 17, 2009
Einar Örn
Spánn, Bretland og Danmörk sendu öll hermenn til Írak. Síðast þegar ég gáði þá eru þau í ESB.
Jón Frímann.
Við uppfyllum ekki eitt Maastrict skilyrði.
AGS þarf að lækka vexti umtalsvert.
Fjárlagahallinn verður að hverfa, það þýðir BLÓÐUGAN niðurskurð. Mun harkalegri en núna.
Verðbólga er ca 12% á ársgrundvelli hún þarf að fara niður í rúm 3%.
Það er barnaskapur að halda að við munum geta tekið upp Evru á sama tíma og við gengjum inn. Líklegra er að það tæki amk nokkur ár allt upp í 10 ár eins og Lettar eru að reyna núna.
By Friðjón on júl 17, 2009
Er það ekki til marks um hversu léleg hagstjórn hefur verið hér á landi að við höfum aldrei nokkurn tímann uppfyllt öll Maastricht skilyrðin? Eða er vandamálið kannski meira en bara hagstjórnin?
By Egill M on júl 17, 2009
Egill M
Eina evrópulandið sem uppfyllir öll skilyrðin, innan ESB sem utan, er Noregur.
By Friðjón on júl 17, 2009